Blængur landaði í Hafnarfirði

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK landaði 400 tonnum af afla í Hafnarfirði fyrir helgi. Um millilöndun var að ræða en togarinn hélt strax aftur á miðin að löndun lokinni. Túrinn verður í heild um 40 dagar. Tonnin 400 veiddi Blængur á 13 dögum.

„Það voru komnir um 13.000 kassar af afurðum eða tæplega hálffermi og tímabært að landa. Við höfum mest verið á Vestfjarðamiðum í góðu veðri. Veitt hefur verið í Víkurálnum og á Hornbankasvæðinu. Aflinn er blandaður en mest af ýsu og karfa. Hér um borð bera menn sig vel,” sagði Sigurður Hörður á vef útgerðarinnar.

Deila: