Rannsóknin aftur felld niður

Deila:

Lögreglan á Vestfjörðum hefur fellt niður rannsókn á slyslasleppingu Arctic Fish í Patreksfirði haustið 2023. Þetta er í annað sinn sem málið er fellt niður. Ríkissaksóknari hafði, eftir kæru vegna fyrri niðurfellingarinnar, gert lögreglustjóranum að rannsaka málið frekar. Þeirri rannsókn mun vera lokið og málið fellt niður.

Fram kemur í frétt BB að ekki hafi komið fram upplýsingar í málinu sem væru nægilegar eða líklegar til sakfellis.

Haft er eftir Helga Jenssyni lögreglustjóra og lögin um fiskeldi séu þannig að sýna þurfi fram á ásetning eða gáleysi þegar brot eru framin.

Deila: