Opnað fyrir umsóknir úr matvælasjóði

Deila:

Matælasjóðir opnar fyrir umsóknir 1. febrúar 2025. Hægt verður að sækja um út febrúarmánuð. Um verður að ræða sjöttu úthlutunina úr sjóðnum en að þessu sinni eru 477 milljónir króna til ráðstöfunar.

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.

„Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að ýta skuli undir vöxt og verðmætasköpun í matvælaframleiðslu og efla nýsköpun í landbúnaði,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Matvælasjóður er öflugur sjóður sem spilar lykilhlutverk til að koma megi þessum markmiðum í framkvæmd.“

Matvælasjóður veitir styrki í fjórum flokkum:

  • Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi, úr hugmynd yfir í verkefni.
  • Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.
  • Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi, eru ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.
  • Fjársjóður styrkir sókn á markaði, hjálpar fyrirtækjum að koma sínum verðmætum á framfæri.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér flokka og handbók sjóðsins vel áður en farið er í að vinna umsókn.

Einungis verður tekið við umsóknum í gegnum Afurð sem er stafrænt stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sjóðsins.

Deila: