Hafa áhyggjur af slakri humarveiði

Deila:

Humarveiðar hafa gengið illa undanfarin misseri og langt frá því að aflaheimildir hafi náðst. Þannig varð aflinn á síðasta fiskveiðiári aðeins 363 tonn miðað við slitinn humar. Leyfilegur afli var hins vegar 489 tonn og því óveidd um 126 tonn. 113 tonn hafa verið flutt yfir á þetta fiskveiðiár og eru því veiðiheimildir í ár 467 tonn. Á síðasta fiskveiðiári voru 89 tonn flutt frá fyrra fiskveiðiári.

Í síðustu viku var haldinn samráðsfundur um humarrannsóknir, sem hagsmunaaðilar í humarveiðum og fulltrúar Hafrannsóknastofnunar sóttu. Upplifun skipstjóra og útgerðarmanna humarbáta var samhljóma áliti Hafrannsóknastofnunar hvað varðar ástand humarstofnsins.

Á fundinum lýstu skipstjórnarmenn gangi humarveiða og sýn sinni á stöðu stofnsins. Voru þeir sammála um að veiðar væru erfiðari en oft áður og veiði mun minni á hefðbundinni humarslóð. Þá kom fram að smáhumar vantaði að mestu leyti í veiðina. Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar kynntu mat sitt á ástandi stofnsins, sem bar ágætlega saman við framsögu skipstjórnarmanna. Fundarfólk var sammála um að meiri rannsóknir þyrfti til að skilja ástæður þess að nýliðun humars hefur hrunið á undanförnum árum.

Skipstjórnarmönnum voru kynntar nýjar aðferðir við stofnmat humars, sem ganga út á að mynda botninn og telja humarholur. Jafnframt voru niðurstöður rannsókna á veiðarfærum kynntar, sem og mat á tíðni ummerkja og magni botnsets sem þyrlast upp af völdum togveiðarfæra.

 

Deila: