Erfitt ár að baki hjá Arnarlaxi

Deila:

Stöðugleika hefur verið náð í framleiðslu Arnarlax eftir erfitt ár 2024. Þetta kemur fram í uppgjöri fjórða ársfjórðungs félagsins, sem kynntur var í dag. Félagið tapaði um 850 milljónum króna á á árinu, eða 5,8 milljónum evra, án skatta og fjármagnsliða. Til samanburðar nam hagnaður félagsins um þremur milljörðum króna árið áður.

Í uppgjörinu er talað um „líffræðilega áskorun í rekstrinum” en fram kom í fréttum að í mars hefði 300 þúsund laxar drepist í kvóum Fram kom í fjölmiðlum á árinu að um 300 þúsund eldislaxar hafi drepist í kvíum félagsins í Arnarfirði í mars. Ástæðan var að sögn að hluta vetrarsár en veturinn var mjög kaldur. Sjávarkuldi hefur áhrif á eldislaxinn.

Framleidd voru 6.500 þúsund tonni af laxi á fjórða ársfjórðungi sem er nokkuð minna en í sama ársfjórðungi 2023, þegar framleidd voru 7.200 tonn. Heildarframleiðsla ársins 2024 var 11.800 tonn en var 17.900 tonn árið 2023. Rekstrartekjurnar drógust saman um 38% á milli ára.

Deila: