Ógeðslegt tíðarfar

„Sannleikurinn er sá að tíðarfarið hefur verið ógeðslegt að undanförnu,” segir Jón Valgeirsson á Bergi VE í viðtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Bergur landaði í Eyjum í gær. Hann segir að skipið hafi landað á Djúpavogi á fimmtudag, í síðustu viku. Þar hafi aflinn fengist á Ingólfshöfðanum og veðrið hafi verið þokkalegt. Þegar haldið var í Lónsbugtina hafi veðrið versnað til muna.
„Í Lónsbugtinni fékkst skarkoli, þorskur og ýsa. Síðan var haldið á Ingólfshöfðann og þar fengum við þorsk í bölvaðri skítabrælu. Við erum svo að landa 63 tonnum í Eyjum í dag og erum fegnir að hvíla okkur á látunum,” segir hann.
Egill Guðni Guðnason hjá Vestmannaey VE talar líka um veðrið í fréttinni.
„Það er ekki einleikið hvernig veðrið lætur við okkur þessa dagana. Það hefur í sannleika sagt verið djöfullegt. Janúar var í lagi veðurfarslega en febrúar var slæmur og þessir fyrstu dagar í mars hafa verið skelfilegir. Þegar við vorum á landleið var ölduhæðin 10 metrar og djöflagangurinn engu líkur. Þetta var stuttur túr hjá okkur. Við vorum að veiðum á Ingólfshöfða í tvo sólarhringa og fengum þar 60 tonn, mest ýsu. Svo gerðist það að allir skjár um borð duttu út og við urðum að koma okkur í land og láta lagfæra tölvukerfið og það gekk vel. Á þessum slóðum sem við vorum á er ekki jafnmikil fiskgegnd og í fyrra. Vertíðarfiskur er ekki kominn þarna. Líklega hefur loðnuleysið þessi áhrif.”