Vestmannaeyjatogararnir á góðu róli

Vestmannaeyjatogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í fyrradag, Vestmannaey í Eyjum og Bergur í Þorlákshöfn.
Á vef Síldarvinnslunnar tala skipstjórarnir um að túrinn hafi verið góður. „Þetta var tveggja daga túr. Það fór einn dagur í stím og við vorum einn dag að veiðum. Við byrjuðum á Péturseynni og þar var þokkalegur afli. Síðan færðum við okkur á Ingólfshöfðann og þar var hörkugóð ýsuveiði. Hér um borð eru menn bara sallaánægðir með þennan túr,” er haft eftir Birgi Þór Sverrissyni á Vestmannaey.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi lét einnig vel af sér. „Við vorum mest með þorsk og ýsu. Aflann fengum við á Péturseyjarbleiðunni og á Planinu vestan við Eyjar. Það var gott veður og ágætis gangur í þessu. Það er víða töluvert af ýsu en við bíðum svolítið eftir því að þorskur gangi á okkar hefðbundnu vertíðarmið,” er haft eftir honum.
Bæði skip héldu til veiða fljótlega eftir löndun.