„Fáum góðar viðtökur á markaðnum“

Deila:
Ólafur Karl Sigurðarson KAPP

„Áherslan í KAPP Skaganum er á kælingu og frystingu, t.d. lausfrysta-, plötufrysta og krapakerfi ásamt framleiðslu á heildarlausnum fyrir uppsjávarvinnslur. Þar njótum við þess að vera dótturfyrirtæki KAPP ehf. sem hefur á undanförnum áratugum byggt upp sterka þjónustu og ímynd í kælibúnaði bæði hérlendis og erlendis. Þessir fyrstu mánuðir sem liðnir eru síðan KAPP Skaginn hóf starfsemi hafa gengið vel og við erum bjartsýn á framhaldið,“ segir Ólafur Karl Sigurðarson, framkvæmdastjóri KAPP Skagans ehf. og aðstoðarforstjóri KAPP ehf., sem tók til starfa í haust eftir að samkomulag náðist um kaup KAPP ehf. á eignum úr þrotabúi Skagans 3X á Akranesi.

Fyrirtækið starfar í húsnæði sem áður hýsti starfsemi Skagans 3X á Akranesi og eru starfsmenn nú um 25 talsins, nær allt starfsfólk sem áður var hjá Skaganum 3X.

Þjónusta númer eitt, tvö og þrjú

Ólafur Karl segir þjónustu við viðskiptavini vera lykilþátt í uppbyggingu fyrirtækisins. „Við höfum á þessum fyrstu mánuðum lagt áherslu á að byggja upp samband við eigendur búnaðar frá Skaganum 3X, bæði til að kynna þeim okkar varahluta- og viðgerðaþjónustu og aðrar lausnir sem við höfum að bjóða. Okkur er mjög vel tekið, viðskiptavinir eru mjög ánægðir með að hafa trygga þjónustu við þeirra búnað og út úr þessari vinnu okkar að undanförnu hafa líka komið samningar um ný söluverkefni. Við höfum því ekki ástæðu til annars en bjartsýni,“ segir Ólafur Karl sem þakkar jafnframt þann velvilja sem stofnun KAPP Skagans hafi fengið almennt í samfélaginu og ekki síst í nærsamfélaginu á Akranesi.

Markaðir að glæðast

Ólafur Karl segir að í grunninn sé í framleiðslu búnaðar KAPP Skagans byggt á stöðluðum útfærslum sem síðan þarf í flestum tilvikum að útfæra í hverju og einu tilviki eftir þörfum viðskiptavina. „Strangt til tekið erum við í þeim skilningi í fjöldaframleiðslu búnaðar, t.d. hvað varðar frysti- og kælibúnað en það er síðan mismunandi eftir verkefnum hvernig aðstæður eru, hvaða óskir eru um stærð, afkastagetu og margt annað. Með sama hætti eru uppsjávarkerfin mjög mismunandi að umfangi og útfærslu,“ segir Ólafur Karl. Spurður um tækifæri fyrir búnað KAPP Skagans á markaði í dag segir hann að almennt séð hafi áhrifa Covid, Úkraínustríðs, verðbólgu og hárra vaxta gætt á þessum mörkuðum sem öðrum á undanförnum árum. Á sama tíma hafi kvótar í mikilvægum hvítfisktegundum dregist saman á norðlægum hafsvæðum. Allt hafi þetta áhrif en Ólafur Karl þekkir þetta svið vel eftir að hafa starfað í sölu vinnslubúnaðar hjá Marel um margra ára skeið.

„Þrátt fyrir þetta skynja ég að markaðir séu að glæðast á ný sem bæði skýrist af betri fjármögnunaraðstæðum og líka því að viðskiptavinir þurfa stöðugt að huga að endurnýjun búnaðar og fjárfestingu í nýjum tæknilausnum. Við þessar aðstæður er mikilvægt fyrir okkur að horfa til þess að veita framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini og það ætlum við að gera. Við viljum fara í gegnum allt ferðalagið með viðskiptavinum, afhenda þeim vandaðan búnað og vera þeim til halds og trausts þegar á þarf að halda.“

Nánar er rætt við Ólaf Karl í nýjasta tölublaði Sóknarfæris.

Deila: