Kolefnisgjöld á alþjóðlegum siglingum frá 2028

Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO), stofnun Sameinuðu þjóðanna sem fer með málefni alþjóðlegra siglinga, hefur náð samkomulagi um nýja alþjóðlega staðla til að draga úr losun koltvísýrings (CO₂) frá skipum. Samkomulagið felur í sér að frá árinu 2028 verði skip sem fara yfir ákveðin losunarmörk rukkuð um 53.200 krónur fyrir hvert tonn af umframlosun, auk viðbótargjalds upp á 14.000 krónur fyrir þau sem fara yfir strangari mörk. Skip sem losa minna en þessi mörk segja til um geta hins vegar fengið inneignir sem þau geta selt til annarra skipa sem fara yfir mörkin.
Markmiðið er að draga úr losun frá skipum um 20% fyrir árið 2030 og ná kolefnishlutleysi í greininni fyrir árið 2050. Samkomulagið kveður einnig á um að frá árinu 2030 þurfi skip að minnka losunartíðni eldsneytis um 8% miðað við árið 2008, en þau sem fylgja strangari stöðlum þurfa að ná 21% samdrætti. Þessi mörk hækka í 30% og 43% samdrátt fyrir árið 2035.
Samkomulagið er þó ekki endanlegt, þar sem það bíður formlegrar samþykktar á fundi IMO í október 2025.
Viðbrögð við samkomulaginu hafa verið misjöfn. Evrópusambandið og Bretland hafa fagnað því sem mikilvægu skrefi í átt að markmiðum Parísarsamkomulagsins. Hins vegar gagnrýna umhverfissamtök að samkomulagið gæti leitt til aukinnar notkunar á jarðgasi og lífeldsneyti sem ekki eru kolefnishlutlaus.
Bandaríkin tóku ekki þátt í samningaviðræðunum og lýstu yfir andstöðu við gjöld sem beinast gegn bandarískum skipum vegna losunar eða eldsneytisvals.