Óvenjumörg útköll samtímis

Frá miðnætti hafa sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar sinnt fimm útköllum, sem telst óvenjulega mikið á svo skömmum tíma.
Það fyrsta kom rétt upp úr klukkan eitt í nótt þegar lítill skemmtibátur með fimm manns um borð hvolfdi á Seyðisfirði. Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði, björgunarskipið Hafbjörg frá Neskaupstað, auk björgunarbáts sveitarinnar Gerpis voru kölluð út, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Björgun tókst vel og var fólkið komið um borð í björgunarbát Ísólfs innan tuttugu mínútna. Eftir björgun skipverja tókst einnig að rétta bátinn við og draga hann til hafnar. Aðgerðinni lauk um þrjúleytið í nótt.
Í morgun bárust síðan fjögur útköll vegna strandveiðibáta í vandræðum á mismunandi stöðum við landið. Fyrst var útkall vegna vélarbilunar báts í Faxaflóa sem björgunarbáturinn Margrét Guðbrands frá Akranesi aðstoðar nú við að koma til hafnar.
Stuttu síðar varð annar bátur vélarvana í Ísafjarðardjúpi og björgunarbáturinn Svanur frá björgunarsveitinni Kofra fór til aðstoðar.
Þriðja útkallið barst klukkan átta vegna lítils fiskibáts með vélarbilun í mynni Patreksfjarðar. Þar fór björgunarskipið Vörður II frá Patreksfirði til hjálpar.
Fjórða útkallið barst svo rétt fyrir klukkan níu vegna báts vestur af Syðra Hrauni með bilaða vél, og fór björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði til aðstoðar.
Þó ekki væri bráð hætta á ferðum í þeim síðari tilvikum, er afar sjaldgæft að á sama tíma séu fjögur björgunarskip félagsins á sjó að draga báta til hafnar.
Meðfylgjandi eru ljósmyndir frá Verði II