Heiðrún Lind og Daði Már tókust á

Í umræðuþættinum Torginu á RÚV á þriðjudag tókust á Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), um fyrirhugaða hækkun veiðigjalda.
Daði Már lagði áherslu á að veiðigjöld ættu að endurspegla arðsemi greinarinnar og tryggja sanngjarna nýtingu auðlinda. Hann sagði meðal annars: „Við viljum að veiðigjöldin séu í samræmi við arðsemi greinarinnar og að þau stuðli að sanngjarnri nýtingu auðlinda.“
„Þetta er ansi frjálsleg túlkun,“ sagði Daði Már við fullyrðingu Heiðrúnar Lindar um að verið sé að breyta aðstöðu vinnslunnar með breytingu ríkisstjórnarinnar á veiðigjaldi.
„Við erum að tala um útreikning á veiðigjaldi við erum ekki að tala um það hvernig útreikningar fara fram innan fyrirtækjanna eða hvernig skiptingin er þar. Einungis hvað er reiknað í veiðigjald og það er auðvitað fráleitt að halda því fram að það sé verið að breyta aðstöðu vinnslunnar. Ég trúi því ekki að þú ætlir að halda þessu fram,“ sagði Daði. Heiðrún svaraði því til að það ætlaði hún að gera blákalt.
Heiðrún Lind gagnrýndi að hækkunin myndi bitna á minni útgerðum og veikja samkeppnishæfni þeirra. „Þessi hækkun veiðigjalda mun hafa neikvæð áhrif á minni útgerðir og getur leitt til samdráttar í greininni, sagði hún meðal annars í þættinum.“