Heimsmeistarinn notar fisk frá Blængi

Deila:

Sigurvegari heimsmeistaramótsins í fish and chips, sem haldið var í London í febrúar 2025, notar fisk frá íslenska frystitogaranum Blængi NK, sem er í eigu Síldarvinnslunnar. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar.

„Fulltrúar þriggja efstu fyrirtækjanna í flokknum “Takeaway of the Year” heimsóttu Ísland í síðustu viku og komu meðal annars til Neskaupstaðar um sjómannadagshelgina. Með í för voru blaðamenn frá þremur öflugum breskum fjölmiðlum eins og til dæmis Financial Times. Ferðin var á vegum íslenska markaðsverkefnisins “Seafood from Iceland” og annaðist Íslandsstofa skipulag heimsóknarinnar. Hópurinn kom til Neskaupstaðar um sjómannadagshelgina og fékk að upplifa sjómannadagshátíðarhöld og bragða á dýrindis fiskréttum í Beituskúrnum. Fulltrúar Síldarvinnslunnar tóku á móti hópnum og buðu honum meðal annars í hópsiglingu á frystitogaranum Blængi NK,” segir í fréttinni.

Blængur NK er hluti af bolfiskflota Síldarvinnslunnar og leggur stund á veiðar á botnfiski. Samkvæmt fréttinni hélt Blængur til veiða að lokinni sjómannadagshelgi í byrjun júní 2025.

Þessi viðurkenning undirstrikar gæði íslensks sjávarfangs og styrkir orðspor Íslands sem framleiðanda hágæða sjávarafurða á alþjóðavísu.

Nánari upplýsingar má finna í frétt Síldarvinnslunnar.

Á meðfylgjandi mynd eru vinningshafnarnir, bresku blaðamennirnir og fulltrúar Sídlarvinnslunnar um borð í frystitogaranum Blængi NK. Ljósmyndina tók Nikoleta Savvaki.

Deila: