Auglýsa eftir tilboðum í aflamark

Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir tilboðum í skipti á aflamarki í kolmunna, rækju og makríl í skiptum fyrir þorsk eða steinbít.

Í boði er neðangreint aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski   og steinbít. Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 180,58 kr/kg og steinbítur 42,16 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn opnar klukkan 8:00 mánudaginn 8. maí 2017. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu http://www.fiskistofa.is/umfiskistofu/gjaldskra/ ber að greiða 12.200 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

Fisktegund Þíg Aflamark  
Kolmunni 0,09 4.543 tonn
Rækja við Snæfellsnes 1,63 36.993 kg
Makríll 0,21 8.929.000 kg

Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðasmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs.

Afturköllun tilboða eftir að umsóknarfrestur er runninn út er ómheimil. 

 

Deila: