Vertíðarufsinn skilar sér ekki

Frystitogarinn Vigri RE, sem er í eigu Brims, landaði 365 tonnum af fiski í Reykjavík fyrir helgi. Þar af var 131 tonn af djúpkarfa og 40 tonn af gullkarfa. Í farminum voru einnig 66 tonn af ufsa, 63 tonn af ýsu og 54 tonn af þorski.
Á vef Brims er haft eftir skipstjóranum, Árna Gunnólfssyni, að ufsinn sé alveg týndur. „Vertíðarufsinn hefur ekki skilað sér og við þökkum fyrir ef við sjáum hann í stykkjatali,“ er haft eftir Árna. „Hins vegar virðist vera nóg af þorski og ýsu á helstu miðum og gullkarfinn er bókstaflega um allan sjó.“
Fram kemur að skipið hafi verið að veiðum suður og suðvestur af Reykjanesi. Aflinn hafi verið mjög blandanður. „Mest ýsa en einnig þorskur, gullkarfi og smávegis af ufsa. Ástandið annars staðar er svipað nema ufsann vantar alveg,“ segir hann.
Í fréttinni segir að svipaða sögu sé að segja af Vestfjarðamiðum. Á Halanum sé venjulega góð ufsaveiði um þessar mundir en hann sjáist varla núna. „Hins vegar flæðir gullkarfi þar yfir og hans hefur orðið vart niður á um 250 faðma dýpi,“ segir Árni.
Veiðiferð Vigra ER á að ljúka 30. mars. Allt snýst að sögn skipstjórans um að finna ufsann.