Þyrlan kölluð að skemmtiferðaskipi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun vegna bráðra veikinda um borð í skemmtiferðaskipi. Fram kemur á Facebooksíðu stofnunarinnar að þegar útkallið hafi borist hafi skipið verið um 50 sjómílur norður af Látrabjargi.
Fram kemur að vel hafi gengið að hífa manninn um borð í þyrluna en í kjölfarið hafi sjúklingurinn verið fluttur á Landspítalann í Fossvogi.
Myndirnar eru frá Landhelgisgæslunni.