Ísfélagið kaupir skip
Ísfélag hf. hefur samið um kaup á uppsjávarskipinu Pathway. Seljandi er skoska fyrirtækið Lunar Fishing Company Limited. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Pathway var smíðað árið 2017 í Danmörku og er 78 metra langt og 15,5 metra breitt. Kaupin eru liður í endurnýjun á skipaflota félagsins.
Áætlað er að skipið verði afhent í maí á næsta ári.
Mynd: Rab Lawrence / Flickr