Um 200 þegar sótt um strandveiðar

Deila:

Mikill kraftur er í skráningum á strandveiðar, en þær hefjast á fimmtudaginn í næstu viku. Fram kemur á vef Fiskistofu að sótt hafi verið um leyfi fyrir um 200 skip. Bent er á að mikið álag sé á Fiskistofu upphaf strandveiða. Því sé fólki bent á að senda fremur tölvupóst á fiskistofa@fiskistofa.is frekar en að hringja.

„Gott er að hafa í huga að afgreiðsla strandveiðileyfis getur tafist ef opinberar upplýsingar eru misvísandi eða sýna ekki fram á eignarhald allra þeirra aðila sem eiga eða gera út skip. Fiskistofa mun taka þær umsóknir til sérstakrar skoðunar með tilheyrandi gagnaöflun.

Afgreiðsla umsókna sem ekki fara í gegnum umsóknargáttina getur tekið allt að fjóra virka daga.

Allar nánari upplýsingar um tilhögun veiðanna ásamt leiðbeiningum fyrir umsóknarferlið er að finna hér á síðunni í grein um strandveiðar.”

Deila: