Afnema leyfi til heimavigtunar

Fyrirhugað er að banna heimavigtun á bolfiski og pökkuðum sjávarafurðum. Þetta má lesa úr drögum um breytingum á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Frumvarpsdrögin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda en bæði Fiskistofa og Ríkisendurskoðun hafa lagt þetta til.
Fram kemur að tilurð þessarar lagabreytingar séu samkomulag strandríkja varðandi framkvæmd vigtunar, skráningar og eftirlits með uppsjávarstofnum. Þar er um að ræða makríl, kolmuna og norsk-íslensk vorgotssíld. Að samkomulaginu standa auk Íslands Noregur, Færeyjar, Grænland og Bretland. Ísland hefur frest til 1. janúar 2026 til að uppfylla skilyrði samkomulagsins, en þegar uppfyllir Ísland þau flest.
Ríkisendurskoðun hefur lýst því yfir að afnema ætti heimavigtunarleyfi þessara útgerða. Hún skapi óþarfa áhættuþætti og geri eftirlit erfiðara. Í dag hafa aðeins uppfjávarútgerðir þetta leyfi en þær fá bolfisk oft sem meðafla með uppsjávartegundum. Afla uppsjávarveiðiskipa er iðulega dælt úr veiðiskipi fyrir vinnslu.
Drög að reglugerðinni má sjá hér.