Kristian til Grieg Seafood
Kristian Matthiasson, fyrrverandi forstjóri og annar stofnenda Arnarlax, hefur verið ráðinn verksmiðjustjóri í nýrri vinnslu norska laxeldisfélagsins Grieg Seafood. Vinnslan verður í Gardermoen. Þetta kemur fram í frétt norska miðilsins iLaks.
Vinnslan verður opnuð haustið 2024. Kristian lét af störfum sem forstjóri Arnarlax 2018.