Vel veiðist af makríl í íslenskri lögsögu

Deila:

Á vef Síldarvinnslunnar er greint frá því að makrílskip Síldarvinnslunnar og Samherja hafi að undanförnu veitt vel í íslenskum sjó. Í Neskaupsstað sé verið að vinna afla úr Vilhelm Þorsteinssyni en Börkur NK landaði svo 1.380 tonnum í gær. Þá eru Barði NK og Margrét EA á miðunum en Beitir NK er á leið þangað eftir að hafa landað í Noregi.

Haft er eftir Hjörvari Hjálmarssyni skipstjóra á Berki að veiðarnar hafi gengið vel undanfarna daga. Gott sé að hafa fundið fisk í íslenskum sjó því það skipti máli hvort veitt er 200 mílur frá landi eða 400-500 mílur, eins og þegar veitt er í Smugunni.

„Nú höfum við verið að veiða alveg við línuna um 200 mílur frá landinu. Fiskurinn, sem við erum að veiða núna, er bæði stór og fallegur og mun stærri en Smugufiskurinn. Þetta er um 600 gramma fiskur. Það hefur gengið svo vel síðustu daga að þurft hefur að hægja á veiðunum. Skipin í okkar samstarfi stoppuðu veiðar til dæmis frá laugardegi og fram á seinni part sunnudags. Það verður að haga veiðunum þannig að aflinn henti vel til vinnslu og því þarf stundum að hægja á og eins er stutt dregið. Menn eru mjög glaðir að vera aftur farnir að fiska innan íslenskrar lögsögu og vonandi endist það sem lengst. Annars versnaði veðrið þegar við vorum að ljúka veiðum og líkur eru á umhleypingum næstu daga,” segir Hjörvar.

Hafró greindi frá því í vikunni að árlegur sumarleiðangur, þar sem uppsjávartegundir eru mældar, hafi leitt í ljós að minni makríll hafi ekki fundist í íslenskri lögsögu frá því mælingar hófust 2010.

Deila: