Ný tegund sæsnigils nemur land

Deila:

Ný tegund sæsnigils hefur haslað sér völl við Íslandsstrendur. Tegundin kallast svartserkur og ber fræðiheitið Melanochlamys diomedea. Áður hafði hann einungis fundist í Kyrrahafi og eini fundarstaðurinn utan þess er á Íslandi. Þetta kemur fram á vef Hafró.

Þar segir að fyrst hafi vísindamenn orðið varir við eggjasekkina í Sandgerði 2020 og svo í Fossvogi. Í júní 2022 hafi þeir fundist við innanverðan Breiðafjörð en fyrstu dýrin hafi svo fundist í Breiðafirði.

Greint var frá þessum merka fundi á Líffræðiráðstefnunni síðastliðið haust og nú í júní 2024 kom út vísindagrein um þessa nýju fjörulífveru (sjá hér).

„Óskað var eftir upplýsingum um frekari útbreiðslu og nú hafa bæst við all margir fundarstaðir bæði við Faxaflóa og víða í Breiðafirði, m.a. í Hvallátrum. Í byrjun ágúst voru starfsmenn Hafrannsókna- stofnunar staddir í Dýrafirði, nánar tiltekið í botni Dýrafjarðar þegar þeir rákust á eggjasekki og dýr (mynd 2). Eins fundust svartserkir og egg í Arnarfirði og á Barðaströnd. Nyrsta þekkta útbreiðsla svartserks er því Dýrafjörður en trúlega er hann að finna víðar á Vestfjörðum.

Svartserkur hefur aðallega fundist á skjólsælum leirum. Dýrin ferðast um hulin seti og því getur verið erfitt að koma auga á þau, en eggjasekkina er auðvelt að sjá. Hvaða áhrif þessi nýja tegund hefur á lífríkið í fjörum við landið er ekki vitað en fróðlegt verður að fylgjast með hvernig tegundinni reiðir af,” segir í fréttinni.

Deila: