„Hér er hátækni á heimsmælikvarða“

Deila:

„Tæknin í húsinu er gríðarlega fjölbreytt og augljóst er að íslenskur sjávarútvegur stendur vel að vígi þegar horft er til nýsköpunar og tækniþróunar, sem er lykilatriði í atvinnugrein sem keppir á alþjóðlegum og kröfuhörðum mörkuðum. Hér er hátækni á heimsmælikvarða. Á undanförnum árum hafa litið dagsins ljós fjölmörg sprota- og nýsköpunarfyrirtæki sem byggja starfsemi sína að mestu á útflutningi eftir að hafa unnið náið með íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum að þróun afurðanna, meðal annars Samherja. Sjávarútvegurinn er með öðrum orðum á margan hátt aflvaki framfara í íslensku hagkerfi og vinnsluhúsið á Dalvík er skýrt dæmi um það.“

Þetta er haft eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarmála á vef Samherja. Hún kynnti sér starfsemi vinnsluhúss Samherja á Dalvík nýverið. „Ráherrann flutti skrifstofu sína til Dalvíkur í einn dag og kynnti sér einnig starfsemi fyrirtækja og stofnana í sveitarfélaginu. Slétt fjögur ár eru liðin frá ‏því vinnsla hófst í húsinu, sem er eitt fullkomnasta vinnsluhús heimsins í bolfiskvinnslu. Íslenskur hugbúnaður er áberandi í húsinu og flestar vélar eru framleiddar af innlendum fyrirtækjum í samvinnu við starfsfólk Samherja,” segir í fréttinni.

Nánar má lesa um heimsóknina hér. Myndin er af vef Samherja.”

Deila: