Strandveiðin skilaði fimm milljörðum

Afli strandveiðibáta síðasta sumar var um 12.500 tonn samkvæmt bráðabirgðatölum frá Fiskistofu og verðmæti aflans rúmlega 5 milljarðar króna. Tæplega 94% strandveiðiaflans var þorskur en annað að mestu ufsi. Strandveiðitímabilið stóð yfir frá byrjun maí 2024 framundir miðjan júlí 2024.
Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þar sést að um er að ræða verðmætustu strandveiðivertíðina frá upphafi.
Sjá nánar hér.