Láta vel af síldarvertíðinni

Deila:

Forsvarsmenn Síldarvinnslunnar eru ánægður með síldarvertíðina austur af landinu, sem lauk nýverið. Vertíðin hafi gengið vel í alla staði. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins. Þar segir að norsk-íslenska síldin hafi verið stór og falleg. Í bland hafi veiðst íslensk sumargottsíld – sem hafi verið vel haldin.

„Fyrsti síldarfarmurinn á vertíðinni barst til fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar í Neskaupstað 31. ágúst og sá síðasti 22.október. Vinnslu á síldinni lauk síðan í verinu aðfaranótt 24. október. Á vertíðinni lögðu þrjú Síldarvinnsluskip, Barði NK, Beitir NK og Börkur NK, upp síldarafla í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar auk Hákonar EA og Vilhelms Þorsteinssonar EA,” segir í fréttinni.

Þar er rætt við nokkra skipstjóra voru á vertíðinni. Þeim ber saman um að veiðarnar hafi gengið vel í alla staði. Stutt var að sögn á miðin og meset veitt frá Héraðsflóanum og suður í Norðfjarðardýpi. Sigling á miðin frá Neskaupstað hafi verið frá 60 og niður í 30 mílur. „Veiðiferðir á vertíðinni voru stuttar og almennt voru holin mjög stutt. Aflinn var fluttur vel kældur að landi þannig að vart var hægt að hugsa sér ferskari afla til vinnslu. Þá ber að nefna að veiðunum var stýrt með það í huga að hámarka gæði hráefnisins sem unnið var. Síldin sem fékkst var góð. Meðalvigt norsk – íslensku síldarinnar var um og yfir 400 grömm og meðalvigt íslensku sumargotssíldarinnar yfir 300 grömm. Hlutfall íslenskrar sumargotssíldar sem veiddist með norsk – íslensku síldinni fór vaxandi þegar leið á vertíðina en þá var norsk – íslenska síldin farin að síga burt frá landinu,” segir í fréttinni.

Viðtölin við skipstjórana má lesa hér.

Deila: