Togarar með fullfermi á Seyðisfjörð

Tveir togarar Síldarvinnslusamstæðunnar lönduðu á Seyðisfirði í gærkvöldi og í morgun að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Í gærkvoldi kom Bergur VE með fullfermi að landi. Haft er eftir Jóni Valgeirssyni skipstjóra að aflinn hafi mest verið ýsa, en veitt var á Gerpisflaki og á Gula teppinu. „Segja má að túrinn hafi gengið vel í alla staði,” er haft eftir Jóni. Bergur hélt á ný til veiða að löndun lokinni.
Gullver NS landaði síðan fullfermi á Seyðisfirði í morgun. Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri segir á vefnum að í túrnum hafi verið gott kropp og smáskot þess á milli. „Við vorum á Gerpisflakinu meirihlutann af túrnum en enduðum síðan á Herðablaðinu. Aflinn var nánast eingöngu ýsa og þorskur,” segir Hjálmar.
Gullver heldur til veiða á ný á miðvikudagskvöld.
Vestmannaey VE landaði í Neskaupstað í morgun og var uppistaða aflans ýsa. Vestmannaey mun halda til veiða að löndun lokinni en ráðgert er að bæði Bergur og Vestmannaey landi á ný á fimmtudag.