Erill á skrifstofu LS

Deila:

Erill hefur verið á skrifstofu LS vegna bráðabirgðaútreiknings á aflaheimildum í grásleppu, sem birtur hefur verið á heimasíðu Fiskistofu. Frá þessu greinir á vef Landssambands smábátaeigenda.

Flestar spurningarnar snúast að sögn um hvað sé á bakvið tonnatölu sem upp er gefin.

Í byrjun apríl sl. lagði Hafrannsóknastofnun til að upphafsaflamark í grásleppu á yfirstandandi fiskveiðiári yrði 1.216 tonn.  Tillaga stofnunarinnar var staðfest í reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2024/2025.

Áætluð úthlutun, í skjali Fiskistofu, miðast því við þá tölu að frádregnum 5,3% – 1.152 tonn. Ráðgjöf Hafró á sl. vertíð var 4.030 tonn, þar af upphafsaflamark 1.193 tonn.

LS bendir á að ekki komi í ljós hver ráðgjöfin verði fyrir næstu grásleppuvertíð fyrr en í byrjun apríl 2025, þegar útreikningar Hafrannsóknastofnunar liggi fyrir. Fyrr verði ekki hægt að gefa út endanlegt aflamark.

Deila: