Ný tollalög valda okkur áhyggjum

Deila:

Rætt við Hilmar Kristjánsson Lyngmo, hafnarstjóra í Ísafjarðarbæ

„Ef við horfum til sumarsins voru hér í höfninni erlend skemmtiferðaskip upp á nær því hvern einasta dag og heildarfjöldi gesta í kringum 235 þúsund manns. Þessu fylgja miklar annir og álag á alla innviði en allt tókst þetta vel og þarf ekki að spyrja um áhrifin á veltu fyrirtækja sem þjóna þessum mannfjölda. Tekjur hafnarsjóðs af þessari starfsemi námu um það bil 756 milljónum króna en auðvitað voru tekjur samfélagsins mun hærri,“ segir Hilmar Kristjánsson Lyngmo, hafnarstjóri í Ísafjarðarbæ í samtali. Hafnir Ísafjarðarbæjar eru fjórar; á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Hilmar segir að liðið sumar hafi verið metsumar í skipakomum til Ísafjarðar en alls komu 186 skip til hafnar og þar af þrjú til Þingeyrar. Raunar hafi heimsóknirnar verið 192 ef talin eru með þau skip sem komu í örstutt stopp vegna smáerinda en hleyptu ekki farþegum í land. Þá getur hann þess að 10 skip hafi þurft að afboða komu sína, oftast vegna slæms veðurs.

Fjárfest í betri aðstöðu

Stöðugt er unnið að frekari uppbyggingu aðstöðu fyrir skemmtiferðaskip í Ísafjarðarhöfnum og að sögn Hilmars mun taka 2-3 ár að ljúka þeim verkefnum sem búið er að skipuleggja. „Við stefnum t.d. á að ljúka við dýpkun við Sundabakka fyrir næsta sumar og taka svo í notkun nýtt rútustæði við höfnina sem var malbikað fyrir skömmu. Út frá því verða gerðar nýjar gönguleiðir frá hafnarsvæðinu sem munu færa stóran hluta gangandi umferðar fjær vinnusvæði flutningabíla, lyftara og annarra vinnuvéla. Þá er verið að hanna nýtt landamærahús fyrir hafnarsvæðið og undirbúa bætta salernisaðstöðu fyrir gesti okkar, svo fátt eitt sé nefnt.“

Hilmar bætir við að enn eigi eftir að bæta aðstöðu við „tenderbryggjuna“ svokölluðu, en þar koma í land þeir farþegar sem ferjaðir eru með léttabátum úr skipum sem leggjast við akkeri. Þar séu áform um að smíða göngustíg úr timbri við hliðina á veginum sem myndi auka öryggi á umtalsvert.

Komum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðarbæjar hefur fjölgað ævintýralega síðustu árin. Árið 2011 komu 35 skip til hafna Ísafjarðar, þau voru orðin 64 árið 2018 og áður en öllu var skellt í lás vegna covid voru þau orðin 131 talsins. Eins og áður sagði voru skipin 186 í sumar og að sögn Hilmars bendir ýmislegt til þess að vöxturinn sé um það bil að ná hámarki en mikil óvissa sé í kortunum.

Ný tollalög valda áhyggjum

„Því miður eru blikur á lofti því um næstu áramót taka gildi breytingar á tollögum sem munu íþyngja þessum viðskiptum þótt við og þeir hjá Tollinum vitum ekki hvernig eigi að framfylgja þeim lögum. Þessar breytingar gætu haft mikil áhrif á hringsiglingarnar en allmörg smærri skipanna hafa fasta viðveru við Íslandsstrendur, sigla hring eftir hring og staldra við í fjölmörgum höfnum. Þessi skip hafa notið ákveðins tollfrelsis, en nú stendur sumsé til að afnema það. Það er veruleg hætta á að útgerðarfélög þessara skipa muni endurskoða stöðu sína og ljóst að það yrði umtalsvert högg fyrir afkomu hafnanna ef slíkar hringsiglingar drægjust verulega saman eða hreinlega legðust af. Hvað okkur varðar voru t.d. 53 af komum skipa til Ísafjarðar í tengslum við hringsiglingarnar, farþegafjöldinn var tæplega 16 þúsund manns og tekjur hafnarinnar af þessum skipum námu um 75 milljónum króna. Þetta yrði líka umtalsverður tekjumissir fyrir mörg þjónustufyrirtæki í sveitarfélaginu, en langflestir farþegar þessara skipa fara í skipulagðar skoðunarferðir og kannanir benda til þess að meðaleyðsla hvers farþega á þessari tegund skipa sé talsvert meiri en farþega stærri skipanna.“

Ferðaþjónusta að eflast

Hilmar segir að hafnarstarfsmenn sem og aðilar í ferðaþjónustu og frá Ísafjarðarbæ hafi sinnt markaðsstarfsemi vel á undanförnum árum og átt fjölmarga fundi með erlendum aðilum sem gera skemmtiferðaskipin út og ljóst að áhugi þeirra á Íslandi og Ísafirði er enn mikill. „Mörg þessara fyrirtækja hafa fylgst náið með framkvæmdunum við höfnina okkar og fagna því að nú skuli vera hægt að bjóða farþegunum upp á betri aðstöðu en áður við komuna til bæjarins. Annars virðast farþegar undantekningalítið vera ánægðir með heimsóknir sínar til Ísafjarðar og á meðan svo er munu skipafélögin vonandi halda áfram að bjóða upp á Ísafjarðarbæ sem einn af sínum viðkomustöðum. Það skiptir samfélagið okkar miklu máli enda hefur byggst upp í kringum þetta öflug ferðaþjónusta hér um slóðir og margir sem hafa atvinnu af því að þjónusta farþega skemmtiferðaskipa.“

Greinin birtist fyrst í nýjasta tölublaði Sóknarfæris.

Deila: