Vélarvana báti bjargað

Deila:

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á fimmta tímanum í gær  neyðarkall frá báti sem var orðinn vélarvana norður af Rekavík bak Látur á Hornströndum. Bátinn rak í átt að Straumnesi en þar er stórgrýtt fjara og straumþung röst og því ljóst að talsverð hætta var á ferðum.

Kallað var eftir aðstoð nærliggjandi báta og björgunarsveitir á Ísafirði og í Bolungarvík kallaðar út. Gunnar Friðriksson, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Ísafirði, og Gísli Hjaltason björgunarbátur björgunarsveitarinnar Ernis í Bolungarvík, héldu þegar á staðinn. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF einnig send af stað. Þegar báturinn var innan við hálfa sjómílu frá Straumnesi breyttist rekið svo hann rak norður fyrir. Gísli Hjaltason kom fyrstur á vettvang og tók bátinn í tog.

TF-LIF var komin í Ísafjarðardjúp þegar ljóst varð að skipverjinn á bátnum væri óhultur. Henni var þá snúið við austur á Langanes þar sem maður sem var við eggjatöku var lentur í sjálfheldu eftir að hafa slasast á fæti. Þá voru lögregla og björgunarsveitir á svæðinu komnar á vettvang. Á leiðinni þangað barst stjórnstöð hins vegar beiðni frá Neyðarlínunni um aðstoð vegna bílsslys í Vatnsdal, rétt vestan Blönduóss. Þyrlan lenti við slysstaðinn í Vatnsdal um sjöleytið.

Á meðan þessu stóð barst stjórnstöð svo beiðni frá Neyðarlínunni um þyrluaðstoð vegna annars bílslyss, nærri Vík í Mýrdal. Þyrlan TF-SYN fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum og mætti hún sjúkrabíl með hinn slasaða á veginum að Landeyjahöfn rétt upp úr klukkan sjö.

 

Deila: