Úthafshringstreymi stjórnar loftslaginu

Deila:

Hjálmar Hátún haffræðingur (MSc physics, PhD) hjá færeysku hafrannsóknastofnuninni mun flytja erindi á málstofu Hafrannsóknastofnunar þriðjudaginn 19. nóvember kl. 12.30. Yfirskrift erindis hans er Úthafshringstreymi stjórnar loftslagi og vistkerfum sunnan við norðurskautið (e. Oceanic gyres regulate subarctic marine climate and ecosystems) og verður flutt á ensku.

Málstofan er öllum opin og gestir velkomnir í sal á jarðhæð að Fornubúðum 5 og á Teams fundi.

Í ljósi vatnaskipta á Grænlands-Skotlandshryggnum fer Hjálmar yfir umræðuna um möguleikann á hægara flæði veltihringrásarinnar sem kölluð er AMOC.

Tengill á streymi í Teams er hér.

Deila: