Bjarni veitir leyfi til hvalveiða í fimm ár

Bjarni Benediktsson, starfandi matvælaráðherra, hefur gert það að einu sínu síðasta embættisverki að gefa út leyfi til veiða á langreyðum til fimm ára. Leyfi hefur hann einnig veitt til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf.
Á vef Stjórnarráðsins segir að þrjár umsóknir hafi borist um leyfi til hrefnuveiða og ein umsókn til veiða á langreyðum. Leyfin séu gefin út í samræmi við ákvæði laga nr. 26/1949 um hvalveiðar, að fengnum umsögnum Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar.
„Leyfin eru veitt til fimm ára líkt og árin 2009, 2014 og 2019 og þannig er nokkur fyrirsjáanleiki í atvinnugreininni tryggður. Leyfin framlengjast árlega um eitt ár og heimilt er að flytja allt að 20% af veiðiheimildum hvers árs yfir á næsta ár. Fiskistofa og Matvælastofnun munu sem fyrr hafa eftirlit með veiðunum,” segir í fréttinni.
Bjarni