Komast lengra í virðiskeðju sjávarútvegs

Deila:

Síldarvinnslan hefur gengið frá kaupum á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood en með því lýkur viðræðum sem fyrst var tilkynnt um í lok mars á þessu ári. Frá þessu greinir á vef fyrirtækisins. Þar er haft eftir Gunnþóri Ingvasyni forstjóra að fjárfestingin sé gerð í því skyni að styrkja sölu- og markaðsmál félagsins. Það sé rökrétt framhald af þróun sem átt hefur sér stað innan Síldarvinnslunnar hf. á undanförnum árum og birtist meðal annars í kaupum á Vísi hf. í Grindavík í fyrra. „Ice Fresh Seafood hefur í mörg ár verið leiðandi í sölu- og markaðssetningu íslenskra sjávarafurða. Með þessum viðskiptum er Síldarvinnslan að komast lengra í virðiskeðju sjávarútvegs og nær neytendum þeirra afurða sem við framleiðum. Í því felast ákveðin sóknartækifæri,“ segir hann.

Fram kemur í fréttinni að verðmæti Ice Fresh Seafood sé metið 42,9 milljónir evra sem jafngildi 1,76 sinnum bókfært virði eigin fjár þess hinn 31. desember 2022. Viðskiptin felist annars vegar í kaupum á núverandi hlutum af Samherja hf. fyrir 10,7 milljónir evra, og hins vegar útgáfu nýs hlutafjár í Ice Fresh Seafood að fjárhæð 21,5 milljónum evra. Heildarvirði Ice Fresh Seafood verði 64,4 milljónir evra eftir hlutafjáraukninguna og fjárfesting Síldarvinnslunar nemur 32,2 milljónum evra.

Í fréttinni segir enn fremur;

Samhliða þessum viðskiptum mun Ice Fresh Seafood  ganga frá kaupum á eignarhlutum í erlendum sölufélögum sem fyrirtækið hefur átt í farsælu viðskiptasambandi við undanfarin ár. Um er að ræða helmingshlut í Seagold Ltd. í Bretlandi, 100% eignarhlut í Ice Fresh Seafood SAS í Frakklandi, 67% hlutafjár í Ice Fresh Seafood Spain S.L. og helmingshlut í Aquanor Marketing Inc. í Bandaríkjunum fyrir samtals 13,9 milljónir evra. Verðmæti félaganna fjögurra í þessum viðskiptum er 1,37 sinnum bókfært virði eigin fjár þeirra í árslok 2022. Félögin voru áður hluti af samstæðu Samherja Holding ehf. og unnið hefur verið að viðskiptunum frá því í lok árs 2022.

Þá mun Ice Fresh Seafood  ganga frá kaupum á helmingshlut í sölufélaginu Cabo Norte S.A. á Spáni  af Síldarvinnslunni fyrir 4,9 milljónir evra. Virði hlutarins byggir á því að verðmæti Cabo Norte S.A. sé 1,3 sinnum bókfært virði eigin fjár félagsins í lok árs 2022.

Velta Ice Fresh Seafood var 337 milljónir evra árið 2022 og velta erlendu sölufélaganna var 194 milljónir evra. Samanlögð velta að teknu tilliti til sölu milli félaga var 485 milljónir evra. Samanlögð EBITDA félaganna var 6,7 milljónir evra leiðrétt fyrir einskiptis kostnaði hjá Ice Fresh Seafood vegna stríðsins í Úkraínu.

Fjárfestingin í samræmi við stefnu Síldarvinnslunnar hf.

Fjárfestingin í Ice Fresh Seafood er í samræmi við þá stefnu Síldarvinnslunnar að grípa þau vaxtartækifæri sem bjóðast og stuðla að aukinni áhættudreifingu og arðsemi í rekstri. Ice Fresh Seafood er sölufyrirtæki sem býr yfir margra ára reynslu og sérþekkingu við sölu- og markaðssetningu sjávarafurða. Gústaf Baldvinsson er framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood og hefur gegnt því starfi frá stofnun fyrirtækisins í janúar 2007. Sölunet fyrirtækisins nær til yfir 60 landa og á bak við það er áratuga þekking og viðskiptasambönd á helstu mörkuðum fyrir íslenskt sjávarfang.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, mun greina nánar frá viðskiptunum á fjárfestakynningu í kjölfar birtingar uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2023, sem er áætluð 23. nóvember næstkomandi.

Eins og greint var frá í tilkynningu um upphaf viðræðna hinn 29. mars á þessu ári er Ice Fresh Seafood að fullu í eigu Samherja hf. sem er eigandi að 30,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar hf., er jafnframt forstjóri Samherja hf. Með vísan til ákvæða laga og starfsreglna stjórnar þá vék Þorsteinn Már sæti innan stjórnar Síldarvinnslunnar hf. við meðferð málsins og kom ekki að ákvörðunartöku vegna þess.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi Síldarvinnslunnar hf. í viðskiptunum.

Eru viðskiptin gerð með hefðbundnum fyrirvörum um niðurstöður áreiðanleikakannanna og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Deila: