Meirihluti mótfallinn hvalveiðum

Meirihluti þjóðarinnar er óánægður með þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi matvælaráðherra í starfsstjórn, að veita nýtt leyfi til veiða á langreyðum. Þetta kemur fram í frétt á vef Dýraverndunarsamtaka Íslands. Vísað er í nýja könnun Maskínu. 35% segjast hins vegar ánægð með ákvörðunina.
„Þegar spurt var hvort fólk væri hlynnt eða andvígt því að hvalveiðar verði bannaðar með lögum sögðust 44% hlynnt slíku banni á hvalveiðar en 39% sögðust því andvíg. Þannig liggur fyrir að mun fleiri eru óánægð með ákvörðun um nýtt hvalveiðileyfi og sömuleiðis styðja marktækt fleiri landsmenn að hvalveiðar verði bannaðar með lögum,” segir í fréttinni.
Þegar rýnt er í niðurstöður könnunarinnar varðandi spurninguna hvort fólk sé hlynnt eða andvígt því að hvalveiðar verði bannaðar með lögum kemur í ljós að 53% kvenna lýsa sig hlynnt slíkri lagasetningu, 58% íbúa höfuðborgarinnar og 57% fólks með háskólamenntun.