Urðu aðeins varir við loðnu

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 106 tonnum í heimahöfn á Seyðisfirði í gær að því er segir í frétt á vef Síldarvinnslunnar.
Þar er rætt við Þórhall Jónsson skipstjóra. Hann segir að túrinn hafi verið langur, eða um sex dagar. Víða hafi fiskerí verið tregt en aflinn var mest þorskur og ýsa en aðeins af ufsa og karfa slæddist með.
Veðrið var upp og ofan í túrnum. Hann segir að skipin sem hafi verið fyrir austan undanfarið hafi ekki hitt á mikinn fisk.
„Við urðum örlítið varir við loðnu í túrnum. Við sáum engar torfur en það ánetjaðist ein og ein loðna hjá okkur og svo sáum við eina og eina í fiskinum,” er haft eftir Þórhalli.
Gullver mun halda til veiða á ný á morgun.