Norskir vélstjórar fá 5,2% hækkun

Deila:

Verkfalli norskra togaravélstjóra er lokið og nýir kjarasamningar hafa verið undirritaðir. Þetta kemur fram á vef Dnmf, sem er samband vélstjóra í Noregi. Fram kemur í tilkynningunni að þetta sýni hve samtakamáttur stéttarinnar sé mikill. Í samningnum er kveðið á um 5,2% launahækkun fyrir vélstjóra á sjó en þegar þeir vinna við bryggju hækkar kaupið um 10%.

Hækkunin tekur gildi 1. janúar síðastliðinn. Haft er eftir Hege-Merethe Bengtsson að um sé að ræða mikilvægan áfanga fyrir félagsmenn. „Dnmf færir félagsfólki, kjörnum fulltrúum og öðrum stéttarfélögum þakkir fyrir stuðninginn við þessar aðgerðir. Það er samtakamáttur og tryggð sem skóp þessa niðurstöðu,” segir í fréttinni.

Deila: