Hulda landaði góðu hráefni í Hafnarfirði

Deila:

Nýjasta skip flotans, ísfisktogarinn Hulda Björnsdóttir GK frá Grindavík, landaði í Hafnarfirði á þriðjudag. Allur þorskur og ýsa úr afla skipsins fór til vinnslu hjá Vísi í Grindavík en þar var um að ræða um 60 tonn. Annar afli var seldur á markaði.

Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að stærsti fiskurinn hafi farið til saltfiskverkunar en sá smærri hafi verið flakaður og frystur. Um gott hráefni var að ræða og vinnslan gekk vel.

Haft er eftir Pétri Hafsteini Pálssyni framkvæmdastjóra Vísis að hann sé afar ánægður með samvinnu Vísis og útgerðar Huldu Björnsdóttur. „Samvinna eins og þessi er til fyrirmyndar og mikilvæg fyrir Grindavík. Óveðrið að undanförnu hefur haft áhrif á veiðar og það var þörf á því að fá afla til vinnslu frá öðrum en okkar eigin skipum. Aflinn sem kom frá Huldu Björnsdóttur í gær kom sér vel og mikilvægt er að Grindvíkingar vinni saman í framtíðinni,” er haft eftir Pétri.

Deila: