Vestmannaey með 18 tegundir í einni veiðiferð

Systurskipin frá Vestmannaeyjum, Vestmannaey VE og Bergur VE, hafa að undanförnu lagt áherslu á að veiða annað en þorsk, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Þar segir að Bergur hafi landað fullfermi í Eyjum sl. mánudag og Vestmannaey einnig fullfermi í fyrradag. Rætt er við skipstjóra þessara skipa, sem eru ánægðir með túrinn.
Bergur var aðallega með karfa og ufsa – og gekk vel á miðunum – en hægar gekk hjá Vestmannaey. „Staðreyndin er sú að fiskur er ekki genginn á hefðbundnar vertíðarslóðir og það er til dæmis afar lítið að hafa við Eyjar. Það virðist vera ætisleysi á miðunum. Við sáum enga loðnu í túrnum nema austast. Aflinn hjá okkur í túrnum var ótrúlega fjölbreyttur. Við erum nánast með alla fiskabókina í lestinni, ég held að tegundirnar séu 18 talsins,” sagði Birgir Þór skipstjóri á heimasíðunni.