„Það eru búin að vera bölvuð læti”

„Það eru búin að vera bölvuð læti og þetta hafa verið heldur erfiðir dagar veðurfarslega. Það fór nánast aldrei undir 20 metra og ölduhæðin var mikil,” segir Óli Björn Björgvinsson skipstjóri á línuskipinu Sighvati GK, sem landaði í Grindavík í dag. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Óla Björn.
Í fréttinni kemur fram að línuskip Vísis hafi landað ágætum afla í vikunni þrátt fyrir leiðindatíðarfar. Jóhanna Gísladóttir hafi landað nánast fullfermi á Skagaströnd á mánudag og að Sighvatur Jónsson sé að landa 100 tonnum í Grindavík í dag.
Á mönnum er það helst að heyra að erfiðlega gangi að fá eitthvað annað en þorsk.
Ljósmynd: Jón Steinar Sæmundsson