Nýtt aflaskráningarkerfi Fiskistofu

Deila:

Fyrsta útgáfa nýs aflaskráningarkerfis Fiskistofu, GAFL – Gagnagrunnur Fiskistofu og Löndunarhafna, var gefin út 5. febrúar síðast liðinn. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.

Nýja kerfið er í notendavænu viðmóti sem gerir skráningarferlið einfaldara og meira leiðandi sem tryggir betri upplifun fyrir notendur. Kerfið býður upp á ýmsar gagnlegar nýjungar auk þess að vera auðveldara í viðhaldi og aðlögun að þörfum notenda.

Allar hafnir landsins hafa fengið aðgang að nýja kerfinu og eru fyrstu viðbrögð notenda jákvæð. Fiskistofu hafa borist gagnlegar ábendingar sem teknar verða til greina í áframhaldandi þróun á kerfinu með það að leiðarljósi að gera kerfið enn betra.

Deila: