Stýrislaus norður af Hornbjargi

Rétt upp úr eitt í nótt barst aðstoðarbeiðni frá fiskibát sem var þá staddur rétt norður af Hornbjargi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu. Olía hafði farið af stýriskerfi bátsins og hann því stjórnlaus. Fjórir menn eru um borð, veður ágætt og ekki mikil hætta á ferðinni.
Varðskipið Þór, sem var statt í Grundarfirði, var sent af stað vestur ásamt því að áhöfnin á björgunarskipinu Gísla Jóns á Ísafirði var boðuð út. Bæði skip voru að leggja úr höfn rétt um hálf tvö í nótt, að því er segir í tilkynningunni.
„Klukkan fimm í morgun kom svo Gísli Jóns að bátnum og rétt um 10 mínútum síðar var búið að koma taug á milli skipanna og skipstjóri Gísla Jóns setti stefnuna inn á Ísafjörð. Drátturinn hefur ekki gengið alveg áfallalaust fyrir sig, en eftir um klukkustundar drátt hafði einn þáttur dráttartaugar um borð í fiskibátnum slitnað og þurfti að stöðva ferð meðan áhöfn bátsins lagaði það. Því verki var lokið snöfurmannlega og nú rétt um hálf átta í morgunsárið var hægt að halda ferð áfram. Skipin eru nú á um 6 sjómílna hraða eða 11 km á klukkustund, í vesturátt fyrir norður af Hornvík.
Ekki lá fyrir hvenær skipið yrði komið til hafnar en varðskipið Þór hélt áfram för norður fyrir Vestfirði í átt að Gísla Jóns og fiskibátnum.
Uppfært kl. 15:25: Skipin eru komin til hafnar.