Krefjandi ár að baki hjá Fiskistofu

Árið 2024 var viðburðaríkt og krefjandi fyrir Fiskistofu, að sögn Elínar Bjargar Ragnarsdóttur fiskistofustjóra. Í ársskýrslu stofnunarinnar kemur fram að árið hafi byrjað á því að þáverandi fiskistofustjóri, Ögmundur Knútsson, lét af störfum með skömmum fyrirvara. „Ég stjórnaði stofnuninni sem staðgengill þar til nýr fiskistofustjóri var skipaður þann 1. júní eftir umsóknarferli sem tók nokkra mánuði. Þetta er því fyrsta árið sem ég stýri stofnuninni,“ segir Elín Björg í ávarpinu.
Stærsta einstaka áskorunin á árinu var þegar mygla fannst í höfuðstöðvum Fiskistofu á Akureyri í apríl, sem leiddi til þess að loka þurfti húsnæðinu. „Starfsfólk vann heiman frá sér þar til fundið var bráðabirgðahúsnæði. Það reyndi mikið á starfsfólkið að sitja þétt og deila skrifstofum þar til hægt var að flytja aftur inn í húsnæðið í nóvember, þó framkvæmdir væru enn í gangi,“ segir Elín Björg og bætir við að „mannauður Fiskistofu sé einstakur“ og hafi starfsfólkið staðið sig frábærlega við þessar erfiðu aðstæður.
Ríkisendurskoðun gerði stjórnsýsluúttekt á framkvæmd byggðakvóta á árinu og skilaði skýrslu til Alþingis í júní. „Það er ánægjulegt að niðurstaðan var sú að þrátt fyrir ákveðna annmarka á kerfinu hafi framkvæmd Fiskistofu verið í góðum farvegi. Við tökum þó undir ábendingar Ríkisendurskoðunar um að bæta skráningu verklags og koma á innri endurskoðun á ferlum okkar,“ segir Elín Björg.
Á haustmánuðum fór fram stefnumótunarvinna hjá Fiskistofu þar sem meginþorri starfsfólks kom að mótun stefnu fyrir næstu ár. Að sögn Elínar Bjargar eru fjórar megináherslur í stefnunni: „Við leggjum áherslu á tæknivæðingu, þróun mannauðs og menningar, að efla rödd Fiskistofu með bættri miðlun upplýsinga og samstarfi við hagaðila og loks að auka skilvirkni í öllum okkar verkferlum.“
Á árinu voru gerðar breytingar á starfstöðvum Fiskistofu, en ákveðið var að loka stöðinni á Höfn í Hornafirði og opna í staðinn nýja stöð á Neskaupstað árið 2025 til að bæta þjónustu á Austurlandi. Þá fór einnig fram mikilvægt tilraunaverkefni um rafrænt myndavélaeftirlit um borð í skipum, sem Elín segir hafa lofað góðu. „Við stefnum á að þróa verkefnið áfram árið 2025, þar sem m.a. verður skoðuð notkun gervigreindar til að auka skilvirkni í eftirliti,“ segir Elín Björg að lokum.