Hópslysaáætlun virkjuð þegar bát tók niðri

Farþegaskip með 47 farþega og tveggja manna áhöfn tók niðri við Ögurvík í Ísafjarðardjúpi um hádegisbil í dag. Flestum farþegum hefur verið bjargað um borð í björgunarskip, og lítil hætta er nú á ferðum. Þetta kemur fram á Vísi.
Þar segir að hópslysaáætlun hafi verið virkjuð og samhæfingarmiðstöð almannavarna mönnuð. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, eftirlitsflugvélin TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á Vestfjörðum og varðskipið Þór voru kölluð út. Björgunarskipin Svanur frá Súðavík, Gísli Jóns og Kobbi Láka komu einnig á vettvang.
Þjónustubátur frá fiskeldisfyrirtækinu Háafelli var skammt undan og aðstoðaði við björgunina. Farþegaskipið er nú laust og líklegt að það verði dregið til Ísafjarða