Verðmætasti farmur norðfirsks fiskiskips

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar á sunnudagskvöld eftir að hafa verið að veiðum í Barentshafi frá því í lok aprílmánaðar. Í lestum skipsins eru 500 tonn af frystum afurðum eða um 27.000 kassar og var aflinn í veiðiferðinni um 1.450 tonn upp úr sjó og er þá miðað við óaðgerðan fisk. Verðmæti aflans er um 380 milljónir króna og er líklega óhætt að fullyrða að þetta er verðmætasti farmur sem norðfirskt fiskiskip hefur komið með að landi úr veiðiferð samkvæmt frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Theodór Haraldsson var skipstjóri fyrri hluta veiðiferðarinnar en Bjarni Ólafur Hjálmarsson tók við skipstjórn eftir sjómannadag. Bjarni Ólafur segir að veiðiferðin hafi gengið vel en aflinn hefði mátt vera meiri. „Fyrir sjómannadag komu skot þar sem afli var nokkuð góður en síðari hluta veiðiferðarinnar komu engin skot ef síðasti veiðidagurinn er undanskilinn. Síðustu þrjár vikurnar var veiðin afar róleg og það svæði sem helst var veiðivon á var lokað í heila viku vegna heræfinga. Vegna æfinganna þurftum við að færa okkur austar og austast vorum við einar 60 sjómílur frá Novaja Zemlja. Ég held að áhöfnin sé sátt við þennan Barentshafstúr þó veiðin hafi alls ekki verið jafn góð og síðustu ár. Það var skemmtileg reynsla að fara á þessar slóðir. Öll samskipti við Rússana gengu vel og þar nutum við þess að Geir Stefánsson stýrimaður talar reiprennandi rússnesku. Rússarnir voru dálítið hissa þegar þeir uppgötvuðu rússneskumælandi mann um borð hjá okkur, þeir eiga líklega ekki slíku að venjast um borð í erlendum veiðiskipum sem sækja í Barentshafið,“ segir Bjarni Ólafur.

Byrjað verður að landa úr Blængi í Norðfjarðarhöfn í dag og mun löndunin líklega taka eina tvo daga. Gert er ráð fyrir að Blængur haldi til veiða á ný á fimmtudagskvöld.
Ljósmynd: Karl Jóhann Birgisson.

 

Deila: