„Sjó- og vatnasport er í stöðugri sókn“

Deila:

Hafsport ehf. leggur nú aukna áherslu á þjónustu við búnað tengdan sjó- og vatnasporti, en fyrirtækið sérhæfir sig í vörum og þjónustu tengdri hafi og vatni. Meðal þjónustu sem nú er boðið upp á er viðhald á flotgöllum, þrýstiprófanir og viðhald á kútabúnaði fyrir köfun, ásamt alhliða skoðunarþjónustu og viðgerðum á bátum.

Áherslan er lögð á öryggi og fjölbreytni, en sjó- og vatnasport hefur notið mikillar hylli undanfarin ár og búnaðurinn orðið stöðugt betri og öruggari. Nánar er fjallað um starfsemi og áherslubreytingar hjá Hafsporti í nýjasta tölublaði tímaritsins Ægis.

„Þó við breytum svolítið áherslum í versluninni núna þá verðum við áfram með sölu og þjónustu á köfunarvörum, sjógöllum fyrir viðbragðsaðila, seljum hjálma og
öryggisvörur fyrir björgunarsveitir og viðbragðsaðila og þannig má áfram telja,“ segir Þorvaldur.

Deila: