Grásleppuveiðar úr kvótakerfi

Deila:

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, telur ljóst að Alþingi muni samþykkja að falla frá kvótakerfi í grásleppuveiðum sem tekið var upp í ár. Hann segir kerfið hafa reynst illa vegna óvandaðrar lagasetningar og óraunhæfrar útfærslu, en margir veiðimenn fengu úthlutað svo litlum kvóta að þeir töldu ekki svara kostnaði að hefja veiðar. Afleiðingin er að grásleppuaflinn í ár stefnir í aðeins rúm 2.000 tonn samanborið við 3.700 tonn í fyrra.

Þetta segir framkvæmdastjórinn í viðtali í tímaritinu Ægi.

Örn segir markaðinn geta tekið við mun meira magni en verðin hafi ekki fylgt eftir auknum kostnaði sem hamli veiðunum. Hann bendir einnig á að metþátttaka í strandveiðum í ár skýrist að hluta af því að margir grásleppusjómenn hafi snúið sér að þeim til að tryggja tekjur.

Nánar má lesa um málið í nýjasta tölublaði Ægis.

Deila: