Björgunarskip skemmt í Kópavogshöfn

Deila:
Stefnir HSSK

Unglingspiltar eru grunaðir um að hafa grýtt björgunarskipið Stefni í Kópavogshöfn fyrir skemmstu. MBL hefur eftir hafnarverði að þetta hafi verið að minnsta kosti hundrað steinar.

Fram kemur að kvarnast hafi upp úr lakki á bátnum og plasti undir lakki á skel bátsins. Þá hafi kvarnast úr rúðu og báturinn hafi marist.

Hafnarvörður segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn og sennilega ekki það síðasta, sem skemmdarverk eru unnin á svæðinu.

Deila: