Stormur á Hornafirði

Deila:

Línubáturinn Stormur HF er kominn til Hafnar á Hornafirði eftir siglingu frá Póllandi. Skipið reyndist vel á leiðinni enn það hreppti brælu í Eystrasalti og á Atlantshafi.  Skipinu hefur verið breytt svo mikið að segja má að um nýsmíði sé að ræða, en það er 45 metra langt. Til stóð að nota skipið til veiða hér vi land, en horfið hefur verið frá því og hafa eigendur þess auglýst skipið til sölu.

Skipið með rafknúna skrúfu, „dísel electric“ og dregur línuna í gegnum síðuna. Hvort tveggja er nýjung í útgerð íslenskra línubáta, en þekkt annars staðar í heiminum. Skipið er í eigu Storm Seafood í Hafnarfirði.

Axel Jónsson, skipstjóri, hefur haft umsjón með kaupunum á skipinu og breytingum á því ytra. „Þetta verður nýsmíði,“ segir hann í samtali við kvotinn.is,  en við keyptum skrokk í Nýfundnalandi, sem var 23 metrar að lengd og lengdum hann um 22 metra og gerðum bát úr honum. Tæplega 46 metra langan og 9,20 á breidd, 680 tonn. Þetta var bara skrokkur, en er nú orðinn alvöru skip, vistvænn alvöru barkur,“ sagði Axel í samtali við kvótann fyrr á árinu.

„Svo er línan dregin í gegnum síðuna á honum, sem er nýjung á Íslandi, en þekkist annars staðar. Allt sem við erum að gera er nýjung á Íslandi þó útgerðir í öðrum löndum hafi farið þessa leið áður. Skipið er þá alveg lokað og enginn á rúllu í lúgu á síðunni. Þegar fiskurinn er kominn inn á dekkið er þetta svo eins og hjá venjulegum línubátum.“

Stormur er með nýjustu gerð af Mustad beitningarvél með 50.000 króka. Báturinn er líka græjaður fyrir net og ætlunin að fara á grálúðunet.

„Skipið er fullt af nýjungum, en ekkert nýtt sem við erum að finna upp. Þetta hafa menn gert allt áður en við erum að sameina það besta sem við þekkjum í einum bát. Það þarf alltaf einhvern vitleysing í hverja verstöð til að það verði einhver framþróun,“ sagði Axel Jónsson.

Kallinn í brúnni.

Kallinn í brúnni.

 

Deila: