Góð veiði í úthafskarfanum

Deila:

Blængur NK er að úthafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg og hefur aflað vel. Hann hóf veiðarnar 17. maí og er kominn með um 400 tonn upp úr sjó. Kvóti skipsins er rúm 500 tonn þannig að eftir er að fiska rúmlega 100 tonn.

Skipum hefur fækkað mjög á úthafskarfamiðunum að undanförnu. Blængur er eina íslenska skipið á miðunum um þessar mundir en auk hans eru tveir spænskir togarar þar að veiðum auk rússneskra skipa. Heimasíða Síldarvinnslunnar heyrði hljóðið í Theodór Haraldssyni skipstjóra í gærmorgun og spurði hann frétta.

„Það má segja að hér hafi verið veisla hvað veiðarnar varðar. Í upphafi túrsins vorum við að fá um 1 ½ tonn á togtíma og vorum þá að taka um 25 tonn í holi en síðan fór aflinn vaxandi. Mestur var aflinn í fyrradag en þá fengum við um 13 tonn á togtíma. Þegar svona vel veiðist þá takmarkar vinnslan veiðina og þá verður að hægja á henni. Karfinn sem fæst er afar fallegur og við erum með trollið á 400-450 faðma dýpi en þar fæst betri fiskur en þegar veitt er ofar í sjónum. Þegar við komum á miðin var kaldi en nú hefur verið logn, blíða og rennisléttur sjór í heila viku. Hann spáir hins vegar brælu annað kvöld. Við stefnum að því að klára kvótann okkar og koma heim fyrir sjómannadag með góðan afla,“ sagði Theodór.
Ljósmynd Hákon Ernuson.

 

Deila: