Aflhlutir þjóna sjávarútvegi, fiskeldi og fleiru

Deila:

Starfsmenn og eigendur Aflhluta ehf. þeir Hrafn, Björn og Helgi sem allir eru mentaðir vélfræðingar hafa áratuga reynslu í sölu og tæknilegri  þjónustu við sjávarútveginn. Aflhlutir ehf. er umboðsaðili fyrir mörg af þekktustu vörumerkjum á markaði tengdum sjávarútvegi. Þar má nefna bátavélar frá JOHN DEERE, DEUTZ, MAN, hliðarskrúfur frá ABT-TRAC, Ljósavélar ZENORO og fiskidælur frá SEA-QUEST svo eitthvað sé nefnt. Sea-Quest sem er staðsett í Killybegs á Írlandi, er leiðandi í dag í framleiðslu á fiskidælum og tengdum búnaði fyrir uppsjávarveiðiskip. Í dag eru nálægt 70% af uppsjávarskipum á Íslandi með fiskidælur frá Sea Quest. Aflhlutir ehf. þjónustar sjávarútveginn, fiskeldið, bændur og verktaka

Nýlega tóku Afhlutir ehf. við umboði fyrir hinar þekktu JCB rafstöðvar. Nýlega seldum við tvær JCB rafstöðvar fyrir varaafl til ISAVIA á Reykjavíkurflugvelli, einnig höfum við selt töluvert af JCB rafstöðvum til fiskeldisfyrirtækja, þar sem þær hafa reynst mjög vel enda þekktar fyrir gæði og áreiðanleika,“ segir Hrafn Sigurðsson einn af eigendum Aflhluta.

Umboð fyrir bátasmiðjuna Bredgaard Boats

Árið 2016 tóku Aflhlutir ehf. við umboði fyrir Danska skipasmíðastöð sem heitir Bredgaard Boats.

Bredgaard Boats sem staðsett er í nýjum húsakynnum í Rödby, hefur framleitt atvinnubáta frá árinu 1967. Helstu viðskiptalönd Bredgaard Boats eru Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Grænland, Þýskaland,  Holland og nú síðast Ísland.

„Það eru mjög spennandi tímar framundan hjá Aflhlutum ehf. varðandi bátasölu, þar sem nú dregur að sjósetningu stærsta vertíðarbáts sem smíðaður hefur verið úr trefjaplasti fyrir íslenskan aðila. Bárður SH-81 sem er í eigu útgerðarmannsins Péturs Péturssonar á Arnarstapa, hefur verið í smíðum hjá Bredgaard Boats síðan í febrúar 2018.  Bárður SH-81 er smíðaður undir eftirliti og samkvæmt reglum flokkunarfélagsins Bureau Veritas. Í honum er allt það nýjasta nýtt sem er í boði á markaði í dag,“ segir Hrafn.

Hrafn Sigurðsson einn eigenda og starfsmanna Aflhluta.

Endurnýjun á hefðbundnum vertíðarbátum

Hrafn telur að þar sem mikil endurnýjun hefur átt sér stað í togaraflotanum og uppsjávarveiðiskipum sé nú komið að þessum hefðbundnu vertíðarbátum sem hafa setið eftir. „Við sjáum að þessir bátar eru flestir komnir til ára sinna og þarfnast endurnýjunar. Þar sem við sjáum að viðhaldskosnaður og óhagkvæmni í rekstri er töluverð miðað við þann búnað sem í boði er í dag. Þar má nefna til dæmis að aðalvélin í Bárði SH sem er frá MAN í Þýskalandi er með eldsneytisnotkun sem gerist vart lægri í þessum vélaflokki,  195 g/kWh og uppfyllir allar þær ströngu kröfur um mengun sem gerðar eru í dag.“

Með mikið af búnaði í nýjan Bárð SH

„Bárður SH verður einn fullkomnasti bátur af þessari stærð þegar hann kemur til landsinns síðar í sumar. Við erum þeir aðilar sem erum með milligöngu við smíði og sölu á þessum báti og seljum að auki mest allan búnað í bátinn. Aðalvélin er frá MAN og er 900 hestöfl, niðurfærslu gírinn er TWIN DISC MGX, skrúfubúnaðurinn kemur frá Teignbridge, tvær ljósavélar frá Zenoro í Hollandi, hliðarskrúfurnar bæði framan og aftan frá ABT Track í Bandaríkjunum. Þetta eru hliðarskrúfur sem hafa reynst alveg gríðarlega vel á þessum markaði fyrir smærri gerð af bátum. Svo er kraninn frá Guerra á Spáni. Við erum því með puttana í mörgu í tæknibúnaðinum í þessum bát og erum líka að sinna eftirliti með smíðinni.

Við fylgjum mjög vel eftir öllum okkar verkefnum og erum vel tengdir í þau. Við erum ekki bara til að selja, heldur að þjónusta og fylgja eftir öllum þáttum eftir, þannig að allt verði gert eins best og á verður kosið fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Helgi Axel Svavarsson, vélfræðingur og rafiðnfræðingur.

27 metra langur og 7 metra breiður

Hrafn segir að bátasmiðja Bredgaard Boats sé að bjóða upp á kosti að hans mati , sem ekki hafi sést hér á Íslandi áður, þegar litið er til  styrkleika og gæða.

„Hinn nýi Bárður verður stærsti trefjaplastbátur sem smíðaður hafi verið fyrir íslenskan útgerðarmann. Hann er tæplega 27 metra langur og 7 metra breiður. Borghein Yact Design í Danmörku sem er með áratuga reynslu í hönnunn báta, hannaði og teiknaði nýjan Bárð SH í samvinnu við Pétur. Við höfum selt vélbúnað um borð í íslenska plastbáta í áratugi og höfum  aldrei séð flottari og vandaðri vinnubrögð á nokkrum bát eins og hjá Dönunum.

Snurvoðaspil, netatrommla og stjórnbúnaðurinn fyrir snuðvoðina verður með þeim fullkomnasta sem þekkist, og verður öll stjórnun á voðinni tölvustýrð með snertiskjá.  Þessi búnaður kemur frá AS-Scan í Danmörku. Allt vökvakerfið í bátinn er einnig lagt af sérfræðingum AS-Scan. Vökvadælur og lokar koma frá Landvélum.  Það er víða komið við í þessu og þetta verður gríðarlega öflugur bátur í alla staði og vandaður.“

Eftir afhendingu bátsinns í Rödby,  verður siglt til  Boa Tech í Danmörku þar sem allur dekkbúnaður verður settur í bátinn, þ.e þvottakör, fiskimóttakan og annar búnaður á dekki.

Hafa trú á að fleiri fylgi í kjölfarið

„Þegar menn átta sig á öllum kostum þessa báts og gæði búnaðarinns, erum við bjartsýnir á að menn flykkist um borð í hann til að skoða og sjái þá um leið hve vandaður gripur þetta er og fari að leita til Danmerkur eftir nýjum bátum. Ég er viss um að með þessum nýja Bárði hefjist nýr kafli í smíði plastbáta fyrir íslenskar útgerðir. Vinnan er einstaklega vönduð og verðið mjög gott og höfum við mikla trú á því að fleiri fylgi í kjölfarið,“ segir Hrafn Sigurðsson.

Allir menntaðir vélfræðingar

Aflhlutir var stofnað 2006. „Við vorum upphaflega sex sem stofnuðum fyrirtækið. Síðan skildu leiðir eftir fyrsta árið en ég og Björn Jóhann Björnsson héldum áfram með fyrirtækið. Við Björn útskrifuðumst saman úr Vélaskóla Íslands árið 1980 og höfum allar götur síðan verið góðir félagar. Við unnum þó á sitthvorum staðnum. Hann hjá Vélsölunni og ég var í mörg ár hjá Merkúr svo við vorum keppinautar þá. Svo atvikaðist það þannig að við hættum á sama tíma, hann hjá Vélasölunni og ég hjá Marás, þar sem ég var í eitt ár. Þá stofnuðum við Aflhluti og höfum alla tíð síðan verið að vinna þetta fyrirtæki upp. Helgi Axel Svavarsson kemur svo inn í fyrirtækið í byrjun 2017 og er orðinn einn af hluthöfum fyrirtækisins. Hann var framkvæmdastjóri fyrir fyrirtæki sem heitir Ásafl í nokkuð mörg ár. Við erum því þrír starfsmenn sem allir eru jafnframt hluthafar. Við erum allir menntaðir vélfræðingar með réttindi sem slíkir. Helgi er auk þess menntaður rafiðnfræðingur. Starfsemin er byrjuð að sprengja utan af sér, þannig að við erum farnir að huga að ýmsum hlutum til framtíðar,“ segir Hrafn.

Deila: