Byrjað að frysta loðnu

Deila:

Á laugardag var byrjað að frysta loðnu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Þá landaði grænlenska uppsjávarskipið Polar Ammassak 1.200 tonnum af loðnu, þriðja loðnufarminum sem skipið kemur með að landi frá áramótum. Á vef Síldarvinnslunar er rætt við Guðmund Hallsson, skipstjóra á Polar Ammassak um loðnuveiðarnar. „Þetta gekk bara ágætlega hjá okkur. Við fengum aflann um 73 mílur austur af Langanesi og þar var töluvert að sjá. Við fengum aflann í þremur holum og voru frá 300 og upp í 500 tonn í holi. Dregið var í 6-8 tíma. Þessi loðna, sem þarna fékkst, er hin þokkalegasta. Það eru 38 – 40 stykki í kílóinu. Þetta er ekki stærsta loðnan, sem er venjulega fremst í göngunni. Hún er ábyggilega komin framhjá þessu svæði sem við vorum á. Þarna var ágætisveður þar til í lokin en það brast á með skítaveðri í síðasta holinu. Mér líst bara vel á framhaldið á þessum veiðum. Þessi loðna, sem við vorum í, virtist býsna róleg og það var ekki mikil ferð á henni. Hrognafyllingin í henni er ennþá mjög lág. Í reyndinni eru þessar veiðar hinar þægilegustu svo fremi að veður sé gott. Við erum um átta tíma á miðin frá Neskaupstað,” segir Guðmundur.

Fleiri skip á loðnumiðin
Fram kemur í fréttinni að löndun úr Polar Ammassak ljúki um hádegi í dag og í kjölfarið heldur skipið til veiða á nýjan leik. Auk Polar Ammassak hefur grænlenska skipið Tasiilaq verið að loðnuveiðum norðaustur af landinu og í gærkvöldi hélt Barði NK, uppsjávarskip Síldarvinnslunnar, einnig til loðnuveiða.

Meðfylgjandi er mynd af vef SVN af Polar Ammassak við bryggju í Neskaupstað. Mynd: Smári Geirsson

Deila: