Jón pinkill eftirminnilegur

Deila:

Maður vikunnar er Ísfirðingur í húð og hár og hefur hann búið þar alla tíð. Hann byrjaði að stunda sjóinn á tólfta árinu og er enn að klóra sér í hausnum yfir því hvernig honum mistókst að ná tveimur hrefnum í sama skotinu.

Nafn:

Heimir mundar hrefnubyssuna

Heimir Tryggvason.

Hvaðan ertu?

Ísafirði og hef búið þar alla tíð.

Fjölskylduhagir?

Giftur og með 3 uppkomin börn og barnabörnin orðin 6.

Hvar starfar þú núna?

Ég er starfsmaður Ísafjarðarhafnar.

Hvenær hófst þú vinnu við sjávarútveg?

Á tólfta ári, sumarið árið 1975 fór ég á grásleppu með afa mínum og pabba. Þeir drógu netin á árabát og ég sigldi 17 tonna bátnum á meðan og gerði að grásleppunni sem veiddist.

Hvað er það skemmtilegasta við að vinna við íslenskan sjávarútveg?

Það er að vera við góða veiði, í góðu veðri, með góðum mönnum. Fátt skemmtilegra en það.

En það erfiðasta?

Bræla og reiðileysi og sérstaklega er þau bæði komu saman.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur lent í störfum þínum?

Það var á Hrefnuveiðum árið 1982 á Breiðafirði. Þegar það komu tvær Hrefnur upp samsíða, hlið við hlið, í dauðafæri og þá átti að nota tækifærið, slá tvær flugur í einu höggi og skjóta þær báðar í einu. En skutullinn fór á milli þeirra og ég er ennþá að klóra mér í hausnum hvernig í andskotanum það gat gerst!

Hver eftirminnilegasti vinnufélagi þinn?

Það er af mörgum að taka. Benni Överby og Addi Kitta Gau – skipstjórar á Páli Páls þegar ég byrjaði þar til sjós, heiðursmenn. Jón pinkill líka eftirminnilegur, sérstaklega á laugardögum þegar hann og Gummi Sigurvins  rifust um það hvort grjónagrautur héti Steingrímur eða Grjónagrautur. Það þrætuepli stóð í 29 ár og fékkst ekki úr því skorið.

Hver eru áhugamál þín?

Ferðalög, sérstaklega að keyra um á húsbílnum.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Fiskur í raspi!

Hvert færir þú í draumfríið?

Húsbílaferð um Evrópu. Hún hefur verið á dagskrá frá því fyrir covid og vonandi kemst ég af stað í haust.

Deila: